hæ hó
jæja ætla skrifa smá,var að byrja í dag aftur í vinnunni eftir
sumarfrí,soldið erfitt að byrja aftur en það var svo sem ágætt,ætla
svo að kikja í kringluna á eftir með þóreyju þar sem kringlan á
afmæli í dag.
Átakið og herbalifeið gengur bara ágætlega en reyndar hef ég
ekki farið mikið í ræktina síðustu 2 manuði og mjög óregluleg í
herbalifeinu þannig við skarpi ætlum að vikta mig og mæla á
miðvikud og ath muninn hvernig ég er eftir svona pásu það verður
fróðlegt.
Dóttir mín fékk hamstur fyrir viku síðan í afmælisgjöf og það
endaði frekar illa fyrir honum um helgina en þegar ég var að vaska
upp þá hefur camilla farið í búrið hjá hamstrinum Toby og
annaðhvort misst hann eða sett hann á gólfið og svo fór hun að
leika sér á dótabílnum sínum og sennilega keyrt á hann því hann
virtist vera brotinn og þegar ég kom aftur inn í stofu lá hann
þarna og gat ekki hreyft sig og ég fékk svo mikið sjokk og var
langt frá því að vera glöð og reyndi á fá út úr henni hvað gerðist
en hun vildi ekkert segja en hann dó svo bara 5 min seinna og ég
var svo reið og svekkt ohhh hann var svo sætur en því miður þá var
dóttir min nákvæmlega sama og það skiptir hana engu máli að hann sé
dáinn og sagði bara við kaupum bara nýjan toby en hell no ekki fyrr
en eftir nokkur ár,við jörðuðum hann út í garði,búðum vel um hann
og camilla sagði bara góða nótt toby og hljóp voða glöð inn svo
fékk Máni bróðir búrið og allt það sem ég var búin að kaupa og fékk
sér einn dverghamstur.
Ég er svo ógeðslega svekkt að hafa misst af þjóðhátíð gæti
grenjað,allir segja að þetta hafi verið skemmtilegasta þjóðhátíð
sem þau hafa farið á,og var oft hringt í mann og sagt manni hvað er
geggjað gaman eða sagt við mann að drulla sér á staðinn en því
miður enginn pössun að fá þannig ég fór á laugavatn og á
sunnudeginum kom ég aftur heim og ætlaði þá að fara til eyja og
vera bara eina nótt,það væri meiri séns að fá pössun eina nótt en
nei það var ekki hægt að fá pössun og ég var orðin e-d slöpp,var
meira segja komin með einkaflugmann en svo er ég nánast búin að
vera veik síðustu vikuna.En það verður þjóðhátíð á næsta ári ekki
spurning og maður þarf bara vera tímalega í gistingu annaðhvort hus
eða hótel.
næstu helgi verður djammað á föstud er kb banka djamm og á
laugard er mennigar nótt þannig það verður stuð og barnlaus helgi
hjá mér.
jæja hafið það gott
chio